Nýtt risahótel á Ingólfstorgi - ó nei!

Skil ekki þessa vitleysu að ætla að þrengja enn að því sem eftir er af 19. aldar miðbænum. Torgið er fínt og hlynirnir þar að ná sér á strik. Nógu þröngt er um elsta hús Reykjavíkur Aðalstræti 10 og gömlu húsin í þorpinu og kvosinni.

Drottning þeirra húsa - hús Benedikts Gröndal - fúnar inniklemmt og hálfupprifið sem bakhús ofan við Naustið. Öll von um að það komist í Grjótaþorp er farin að þrána. Það hús gæti uppgert í sárinu eftir Glasgowbrunann gert Fischersund heillegt á ný. Það yrði sómi með safn á neðri hæðinni og íbúð fyrir erlenda rithöfunda á þeirri efri. Rithöfundasamband Evrópu vildi styrkja það góða framtak. Vitleysan ríður við margteyming.

Má ekki nota gapandi-tóma-eftir-hruns-húsnæðið um allan bæ fyrir hótel? Ég gekk í gær um Wall Street Íslands kringum Höfða, þá sáru skömm. Upplagt er að breyta þeim járn- og glerkastölum í hótel. Túrhesta hingað reiðar eru ein okkar skársta von. Um þetta á ekki að þurfa að tala, blogga, rövla ... málið er fyrir löngu alltof augljóst. Maður er kjaftstopp fyrir löngu.

 


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þórunn Valdimarsdóttir

Höfundur

Þórunn Valdimarsdóttir
Þórunn Valdimarsdóttir
sagnfræðingur og rithöfundur
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • fugl

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband